Haddi: Dómarinn segir að hann hafi skallað hann
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er ánægður með stigið," sagði Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, eftir jafntefli gegn ÍBV í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 KA
KA var 2-1 yfir þegar Omar Sowe, framherji ÍBV, var rekinn af velli.
„Omar Sowe var ekki búinn að vera með neina stæla í leiknum. Held að hann hafi skallað einhvern og fékk rautt. Þá vorum við 2-1 yfir og þá vill maður klára leikinn. Svo fáum við á okkur klaufalegt víti. Sanngjarnt að þetta fari 2-2 þó maður sé svekktur," sagði Haddi.
„Dómarinn segir að hann hafi skallað hann. Ég treysti honum að það sé rétt. Ég held að enginn dómari reki ekki neinn út af nema hann hafi gert eitthvað svona. Eins með vítið sem við fáum á okkur, ég heyrði að við hefðum stigið aftan á hælinn á honum," sagði Haddi.
KA fær granna sína í Þór í heimsókn á mánudaginn eftir viku. KA vann fyrri leikinn 1-0 þar sem Hallgrímur Mar Steingrímsson skoraði markið úr vítaspyrnu undir lokin.
„Það er alvöru grannasalgur í næstu viku. Það verður ekki voðalega mikill fótbolti þar þannig við verðum að vera tilbúnir í alvöru baráttu. Nú koma þeir á okkar nýja völl. Fyrri leikurinn var virkilega jafn og ég býst við að þetta verði sama barátta," sagði Haddi.