Linta: Omar Sowe sagði að þetta hafi ekki verið harkalegt
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég verð að vera sáttur með jafntefli því við vorum undir og manni færri. Stig hefur mikla þýðingu fyrir okkur og þá. Við vorum manni færri og náðum að jafna, ég er ánægður með það," sagði Aleksandar Linta, þjálfari ÍBV, eftir jafntefli gegn KA í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 2 - 2 KA
„Þetta eru blendnar tilfinningar. Miðað við spilamennskuna í fyrri hálfleik áttum við meira skilið. Við vorum að tapa 2-1, við getum verið betir aðilinn eins og við vorum en tapað samt. Svo erum við manni færri, ég verð að vera ánægður að við töpuðum ekki."
Omar Sowe fékk að líta rauða spjaldið fyrir að skalla Birgi Baldvinsson.
„Það voru margir í teignum. Ég heyrði að hann hafi skallað annan leikmann. Þetta var kannski ekki harkalegt en eitthvað hefur gerst. Ég spurði hann ekki, ég heyrði að hann hafi sagt að þetta hafi ekki verið harkalegt," sagði Linta.
„Þetta er slæmt fyrir okkur. Hann færir okkur mikið, skorar mörk og það verður erfitt að spila án hans. Það var erfitt að vera án hans í einhverjar 10-15 mínútur."