Fotbolti.net
19.07.26 - 19:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánverjar ósáttir - Syngja nafn Infantino

Spánverjar ósáttir - Syngja nafn Infantino
Canon

Mynd: EPA

Það er hasar í leik Spánar og Argentínu í úrslitum á HM. Staðan er enn markalaus eftir hálftíma leik.

Spænsku stuðningsmennirnir voru ekki sáttir eftir stundafjórðung þegar Alexis Mac Allister var ekki áminntur þegar hann braut á Dani Olmo.

Þeir sungu nafn Gianni Infantino, forseta FIFA, en einhverjir eru á þeirri skoðun að FIFA sé að reyna að láta Lionel Messi og Argentínu vinna mótið.
„Hann fór seint í þetta. Þetta hlýtur að vera gult spjald, og vitiði hvað? Dómarinn hefur ekki farið í vasann sinn. Þetta er það sem Argentína gerir og það sem þeir eru góðir í. Þeir eru bara hópur af slagsmálahundum. Og ef þeir komast upp með þetta, þá munu þeir gera þetta," sagði Chris Sutton, sérfræðingur á BBC.

Sjáðu
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.