Fotbolti.net
19.08.05 - 11:42

Michael Essien til Chelsea (Staðfest)

Michael Essien til Chelsea (Staðfest)
Canon
Loksins loksins er sögunni endalausu um Michael Essien lokið. Hann hefur staðiðst læknisskoðun hjá Chelsea og skrifað undir samning við liðið en þessi endalausu saga virtist engan endi ætla að taka. Kaupverðið á Essien er talið vera 26 milljónir punda, 16 milljónum meira en Chelsea buðu fyrst í leikmanninn.
Eftir að Chelsea buðu í hann óskaði Essien eftir því að vera seldur og loksins samþykkti Lyon tilboðið eftir langar og strangar samninaviðræður. Enginn vafi leikur á því að Essien er frábær leikmaður sem getur fallið vel inn í Chelsea liðið.

Það verður þó ekki auðvelt verkefni fyrir hann að komast í liðið enda valinn maður í hverju rúmi hjá Englandsmeisturnum sem hafa nú lokið kauðæðinu í sumar.

Eiður Smári Guðjohnsen sagði í samtali við Fótbolti.net í vikunni að hann fagnaði samkeppninni en þá var nokkuð ljóst að Essien væri að koma: ,,Jú jú ég hef alltaf fagnað mönnum sem koma til liðsins og ég hef aldrei áhyggjur af samkeppni, ég tek á móti henni."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.