19.08.05 - 12:19
Magnús Már Einarsson
Denilson til Manisaspor (Staðfest)

Nýliðarnir Manisaspor í tyrknesku deildinni hafa fengið miðjumanninn Denilson að láni út þetta tímabil frá Real Betis. Denilson sem er 27 ára var á sínum tíma dýrasti fótboltamaður í heimi þegar hann kom til Betis frá Sao Paulo á um 22 milljónir punda árið 1998.
Denilson hefur hinsvegar ekki verið byrjunraliðsmaður hjá Betis að undanförnu en hann hefur átt við meiðsli að stríða. Hann hefur leikið yfir 60 landsleiki fyrir Brasilíu og var í liðinu sem sigraði HM 2002.
Kenan Yarali talsmaður Manisaspor sagði: ,,Við erum ákaflega ánægður að bjóða heimsklassaleikmann velkominn til Manisa. Við höfum einnig sett klásúlu í samninginni þess efnis að við getum einnig fengið hann aftur á næstu leiktíð. Hann mun koma í borgina fljótlega."