19.08.05 - 15:34
Magnús Már Einarsson
Delvecchio til Parma (Staðfest)




Parma hefur samið við sóknarmanninn Marco Delvecchio. Hinn 32 ára gamli Delvecchio hefur verið til reynslu hjá Parma að undanförnu en hann var án félags eftir að hafa yfirgefið Brescia í vor.
Delvecchio kom til Brescia frá Roma í janúar en auk þess að spila frammi þá getur hann leikið á vinstri kantinum. Hann mun nú vera í fremstu víglínu hjá Parma ásamt Bernardo Corradi og er þeim ætlað að fylla skarðið sem Alberto Gilardino skyldi eftir sig en hann er farinn til AC Milan.
Delvecchio kemur með reynslu inn í lið Parma en þessi fyrrum ítalski landsliðsmaður hefur leikið í Serie A frá árinu 1992.
Delvecchio kemur með reynslu inn í lið Parma en þessi fyrrum ítalski landsliðsmaður hefur leikið í Serie A frá árinu 1992.
