Guðlaugur Victor Pálsson var á sínum stað í byrjunarliði Darmstad þegar liðið mætti Osnabrück í þýsku 1. deildinni í kvöld.
Osnabrück náði forystunni eftir rúmlega stundarfjórðung. 1-0 þegar flautað var til hálfleiks.
Liðið gekk síðan á lagið í síðari hálfleik og skoraði þrjú mörk. Guðlaugur Victor fékk að líta gult spjald á 81. mínútu í stöðunni 4-0.
Darmstad átti aðeins eitt skot á markið í leiknum en yfirburðir Osnabrück voru gífurlegir.
Darmstad situr í þrettánda sæti með fjögur stig eftir þrjá leiki.
Athugasemdir