Fotbolti.net
19.08.26 - 11:58
Kári Snorrason

Elvedi til Leeds (Staðfest) - Endurnýjar kynnin við Farke

Elvedi til Leeds (Staðfest) - Endurnýjar kynnin við Farke
Canon

Mynd: Leeds United

Leeds hefur fest kaup á svissneska landsliðsmanninum Nico Elvedi frá Borrussia Mönchengladbach.

Kaupverðið nemur 8.5 milljónum punda. Elvedi er 29 ára gamall varnarmaður sem hefur leikið með Mönchengladbach í rúman áratug.
Svissneskur landsliðsmaður á leið til Leeds
TENGT EFNI

Svissneskur landsliðsmaður á leið til Leeds

Hjá Leeds mun hann endurnýja kynnin við Daniel Farke en hann stýrði þýska liðinu í eitt tímabil, 2022 til 2023.

Elvedi er 29 ára gamall og fastamaður í svissneska landsliðinu. Hann á 73 A-landsleiki að baki og byrjaði alla leiki liðsins á heimsmeistaramótinu í sumar.

Elvedi er fjórði leikmaðurinn sem Leeds semur við í sumarglugganum, á eftir James Trafford, Harry Wilson og varnarmanninum Tarik Muharemovic.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.