19.08.26 - 20:46
Ívan Guðjón Baldursson
Moreira til Milan (Staðfest) - Metfé fyrir Strasbourg

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti fyrir belgíska kantmanninn Diego Moreira sem kemur úr röðum Strasbourg.

TENGT EFNI
Moreira í læknisskoðun hjá Milan - Kostar 50 milljónir
Milan borgar 50 milljónir evra fyrir Moreira sem er 22 ára gamall og getur bæði spilað á hægri og vinstri kanti. Þetta er metfé fyrir Strasbourg og geta 16 milljónir geta bæst við í árangurstengdar aukagreiðslur, auk þess sem Strasbourg heldur prósentu af endursöluvirði leikmannsins.
Þetta er mikill hagnaður fyrir franska félagið sem keypti Moreira úr röðum systurfélagsins Chelsea fyrir tveimur árum, þegar hann kostaði ekki nema 8 milljónir evra.
Hann á fjóra A-landsleiki að baki fyrir Belgíu eftir að hafa spilað 47 unglingalandsleiki fyrir Belgíu og Portúgal.
Moreira er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Milan og er hugsaður sem arftaki fyrir Rafael Leao sem er á sölulista. Það verður áhugavert að sjá hvernig Moreira tekst að tengja við Goncalo Ramos sem Milan keypti fyrir metfé fyrr í sumar. Ítalska félagið borgaði rúmlega 70 milljónir evra til Evrópumeistara PSG fyrir Ramos.

Diego Moreira, one of us ???? pic.twitter.com/cqCzlEzAWG
— AC Milan (@acmilan) August 19, 2026

Mynd: EPA