Fotbolti.net
19.08.26 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Rodrigo Mora til Roma (Staðfest)

Rodrigo Mora til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hinn afskaplega hæfileikaríki Rodrigo Mora er kominn til ítalska félagsins Roma frá Porto. Hann mun klæðast treyju númer 86.

Mora er aðeins 19 ára gamall og hjálpaði Porto að vinna portúgölsku deildina á síðustu leiktíð. Hann hefur í heildina komið með beinum hætti að 22 mörkum í 80 leikjum með aðalliðinu þrátt fyrir ungan aldur.

Roma borga 25 milljónir evra til að kaupa Mora en Porto heldur 50% af endursölurétti leikmannsins. Rómverjar geta þó keypt söluréttinn til sín fyrir 25 milljónir til viðbótar.
Gasperini fær ósk sína uppfyllta
TENGT EFNI

Gasperini fær ósk sína uppfyllta


Mora er sóknartengiliður að upplagi og hefur verið lykilmaður upp unglingalandslið Portúgal, með 17 mörk í 37 leikjum. Gian Piero Gasperini þjálfari hefur gríðarlega miklar mætur á Mora og vonast til að bæta einnig nýjum kantmanni við hópinn á næstu vikum. Mora er fimmti leikmaðurinn sem Roma kaupir í sumar og er liðið einnig að skoða kantmennina Malick Fofana og Luis Henrique sem leika fyrir Lyon og Inter.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.