19.08.26 - 10:41
Kári Snorrason
Rosenborg kaupir Chiakha frá FCK fyrir metfé (Staðfest)

Skorað sjö mörk og lagt upp tvö eftir að Freyr tók við.

Mynd: Rosenborg

Rosenborg hefur unnið fimm af sex deildarleikjum frá því að Freyr tók við.

Mynd: Rosenborg

Skorað sjö mörk og lagt upp tvö eftir að Freyr tók við.

Mynd: Rosenborg
Rosenborg hefur fest kaup á tvítuga Alsíringnum, Amin Chiakha, frá FCK. Chiakha hefur leikið á láni með norska liðinu á tímabilinu og verið sjóðheitur undir stjórn Freys Alexandersonar.
Í þeim sex deildarleikjum sem Freyr hefur stýrt hefur Chiakha skorað sjö mörk og lagt upp tvö til viðbótar.
Í þeim sex deildarleikjum sem Freyr hefur stýrt hefur Chiakha skorað sjö mörk og lagt upp tvö til viðbótar.

TENGT EFNI
Sjóðheitur undir stjórn Freysa - Rosenborg að klára kaupin
Rosenborg nýtir kaupákvæði sem fylgdi með lánssamningnum og hljóðar kaupverðið upp á 5 milljónir evra, sem er það hæsta sem norskt lið hefur greitt fyrir leikmann.
Freyr Alexandersson er aðalþjálfari liðsins sem situr í sjöunda sæti norsku deildarinnar sem stendur, með 24 stig eftir 17 umferðir. Alfreð Finnbogason er yfirmaður fótboltamála hjá Rosenborg. Umboðsmaður Chiakha er Íslendingurinn Magnús Agnar Magnússon.

Amin e trønder. ???????? pic.twitter.com/qI1rbx0h85
— Rosenborg Ballklub (@RBKfotball) August 19, 2026

Rosenborg hefur unnið fimm af sex deildarleikjum frá því að Freyr tók við.

Mynd: Rosenborg