19.09.26 - 14:59
Brynjar Ingi Erluson
De Zerbi gagnrýnir nýja manninn - „Ég var ekki hrifinn af frammistöðunni“

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA

Mateus Fernandes átti ekki góðan leik

Mynd: EPA

Roberto De Zerbi

Mynd: EPA
Ítalski stjórinn Roberto De Zerbi var afar óánægður með frammistöðu sinna manna í 3-2 tapi Tottenham gegn Aston Villa í Lundúnum í dag.

TENGT EFNI
England: Manzambi allt í öllu í fyrsta sigri Villa - Tottenham í fallsæti
Tottenham fékk nokkur góð færi til að koma sér í góða stöðu í fyrri hálfleiknum en Zion Suzuki var vel á verði og sagan því sú sama og oft áður hjá Lundúnaliðinu.
Undir lok fyrri hálfleiks kom Johan Manzambi gestunum yfir og Nicolas Jackson bætti öðru marki við á 67. mínútu áður en Emi Buendía skoraði glæsilegt þriðja mark liðsins.
Tottenham náði að klóra í bakkann með tveimur mörkum undir lokin en það dugði ekki til.
„Ég er ótrúlega vonsvikinn, leiður og pirraður yfir þessari frammistöðu. Við getum ekki tapað svona leik með þessum hætti, það er bara þannig.“
„Annað markið sem við fáum á okkur á ekki að gerast. Við getum ekki tapað jafnvæginu svona og það er eiginlega ótrúlegt hvernig við fengum þetta mark á okkur,“ sagði De Zerbi.
Hann var sérstaklega ósáttur við frammistöðu miðjumannsins Mateus Fernandes, sem var keyptur frá West Ham fyrir 85 milljónir punda í sumar.
„Ég hef mikla trú á Mateus en ég var ekki hrifinn af frammistöðu hans í dag. Ég er ekki að ráðast á hann með þessum orðum því mér þykir mjög vænt um hann, en ég vil meira frá honum, jafnvel í þessari stöðu.“
Dominic Solanke var fremstur í sókninni en hefur átt í miklum vandræðum fyrir framan markið. Hann hefur ekki skorað deildarmark síðan í mars og De Zerbi nefndi tvær mögulegar ástæður fyrir því.
„Líkamlegt ástand hans er einfaldlega ekki nógu gott. Kannski vantar hann líka sjálfstraust í augnablikinu, en það er svo margt sem mætti vera betra hjá okkur núna,“ sagði De Zerbi.