Fotbolti.net
19.09.26 - 22:40
Mate Dalmay

Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér

Auglýsing
Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eiður Smári Guðjohnsen, einn af tveimur þjálfurum KA, svaraði spurningum eftir 3-0 sigur í afar mikilvægum nágrannaslag gegn Þór í fallbaráttu Bestu deildarinnar fyrr í kvöld.
Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum
TENGT EFNI

Besta deildin: Dýrmætur og sannfærandi sigur í Akureyrarslagnum

Lestu um leikinn: KA 3 - 0 Þór
Akureyrarslagurinn fór fram á Greifavelli og var Eiður Smári kátur eftir lokaflautið.

„Við vissum það fyrir leik að þetta yrði smá stríð á vellinum og þeir gáfu okkur alvöru leik. Við vorum liðið sem skapaði færin og nýttum okkar yfirburði til að sigra. Þetta er í fyrsta sinn í langan tíma sem við höldum hreinu," sagði Eiður, sem sagði við menn í hálfleiksræðunni að halda yfirvegun, taka boltann niður og spila boltanum á milli sín. „Ég vil alltaf meiri ró í spilinu, ég vil alltaf að menn trúi á sína hæfileika."

KA klifrar úr fallsæti með sigrinum og er núna tveimur stigum fyrir ofan Þór. Framundan er þriggja vikna frí útaf landsleikjahléi.

„Þetta er stórt skref fyrir okkur en það er alls ekki neitt komið. Það er mikið eftir, það eru ennþá mörg stig í húfi. Ef við erum svona stemmdir og spilum svona þá hef ég ekki áhyggjur."

Eiður var að lokum spurður út í fríið sem er framundan og hló.

„Það er sennilega það síðasta sem ég myndi óska mér að fara í þriggja vikna frí núna."
Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Smári: Síðasta sem ég myndi óska mér
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.