19.09.26 - 18:30
Andri Stefánsson
„Þeir urðu litlir, eins og alltaf“
Auglýsing

Daníel Hafsteinsson, leikmaður Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Hafsteinsson, leikmaður Víkings.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR tók á móti Víkingi í 2. umferð eftir skiptingu klukkan 14:00 í dag. Leikar enduðu með 2-1 útisigri Víkings sem tryggði þeim Íslandsmeistaratitilinn. Fótbolti.net ræddi við Daníel Hafsteinsson, leikmann Víkings, eftir leik.
Lestu um leikinn: KR 1 - 2 Víkingur R.
Daníel Hafsteinsson var að vonum himinlifandi eftir að Víkingur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn.
„Þetta var geggjaður leikur og að geta klárað þetta, eftir að við gerðum þetta helvíti spennandi þarna í endann, gerir þetta ennþá sætara.“
Víkingar lentu undir en unnu sig inn í leikinn og tóku að lokum yfir.
„Við byrjuðum sloppy, upphitunin var léleg og ég sjálfur var ekki með mikla orku til að byrja með. Síðan skora þeir mark en við vinnum okkur inn í leikinn. Þeir verða litlir, eins og alltaf, og síðan rennum við yfir þá restina af leiknum. Vel gert hjá okkur.“
Daníel fór ekki í grafgötur með skoðun sína á styrkleikamun liðanna.
„Við erum miklu betra lið. Það er bara þannig og við sýndum það. Þeir eru frábært lið, ekki misskilja mig, en við erum komnir aðeins lengra og vildum þetta meira líka. Þannig að þetta var helvíti sætt.“
Daníel fékk að líta rauða spjaldið undir lok leiks og tók fulla ábyrgð á því.
„Ég missti hausinn. Ég reyni alltaf að hanga þarna við línuna en núna missti ég aðeins hausinn. Ég var helvíti stressaður. Ég spila fast en þetta var klárlega rautt. Það er bara eins og það er.“
Daníel framlengdi á dögunum samning sinn við Víking til ársins 2030 og sagði það hafa verið auðvelda ákvörðun.
„Mér líður mjög vel í Víkinni og ég held að það hafi verið fáránlega góð ákvörðun hjá mér að fara hingað fyrir tveimur árum og taka stökkið. Ef maður er ekki að spila úti þá er þetta hæsta level sem maður kemst á, að spila í Evrópu og vera tvöfaldur Íslandsmeistari núna. Geggjuð ákvörðun.“
Að lokum hrósaði Daníel stuðningsmönnum Víkings.
„Þeir eru geggjaðir. Það sem er líka skemmtilegt er að þeir hvetja allan leikinn. Þeir eru komnir á svona Skandinavíu-standard. Það er ógeðslega gaman.“

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 24 | +50 | 59 |
| 2 | KR | 24 | +28 | 47 |
| 3 | Fram | 23 | +12 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 23 | +4 | 33 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 23 | -8 | 28 |