Fotbolti.net
19.10.05 - 15:00
Hafliði Breiðfjörð

Gunnlaugur Jónsson til KR (Staðfest)

Gunnlaugur Jónsson til KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnlaugur Jónsson fyrrum varnarmaður ÍA var tilkynntur nýr leikmaður KR a blaðamannfundi félagsins nú klukkan 15:00 í dag. Gunnlaugur gerði 3 ára samning við KR og ljóst er að hann er gífurlegur styrkur fyrir félagið.
Hann tilkynnti í gær að hann væri hættur hjá sínu gamla félagi, ÍA, en auk KR var vitað af áhuga Vals og Fylkis á honum.

Gunnlaugur sem verður 31 árs gamall í lok nóvember hefur átt frábær ár í miðvarðarstöðunni hjá ÍA þar sem hann er uppalinn. Auk ÍA hefur hann leikið með Uerdingen í Þýskalandi, Kongsvinger í Noregi, Örebro í Svíþjóð og Motherwell í Skotlandi.

Litlu munaði að Gunnlaugur gengi í raðir KR fyrir tveimur árum en ÍA bauð honum þá endurbættan samning svo hann ákvað að fara ekki. Gunnlaugur er búsettur í höfuðborginni og hefur því lengi viljað spila með liði á því svæði til að minnka ferðalög í kringum æfingar og leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.