19.10.06 - 13:24
Hafliði Breiðfjörð
Ragnar Sigurðsson til IFK Gautaborg (Staðfest)

Ragnar í leik með U21 árs landsliði Íslands gegn Ítalíu á Laugardalsvelli í september.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Ragnar Sigurðsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við sænska félagið IFK Gautaborg en áður höfðu félögin komist að samkomulagi um kaupverð á Ragnari.
Ragnar er tvítugur miðvörður sem getur líka spilað fleiri stöður á vellinum. Hann hefur átt sæti í yngri landsliðum Íslands, nú síðast í U21 árs landsliðinu.
Hann hefur allan sinn feril leikið með Fylki og var samningsbundinn út næsta ár, 2007. Þess vegna þurfti sænska liðið að kaupa Ragnar frá Fylki. Hann hóf feril sinn með meistaraflokki Fylkis sumarið 2004 þegar hann lék fimm leiki í deild og bikar.
Hann lék alla 18 leiki Fylkis í Landsbankadeildinni í sumar og skoraði í þeim eitt mark auk þess sem hann lék eina leik liðsins í VISA-bikarnum. Á síðustu leiktíð, 2005, lék hann 17 leiki í deild og skoraði í þeim eitt mark auk þess sem hann lék fjóra leiki í bikarnum.