Fotbolti.net
19.10.07 - 14:00
Magnús Valur Böðvarsson

Magni Fannberg tekur við Fjarðabyggð (Staðfest)

Magni Fannberg er hér ásamt Zeljko Sankovic

Magni Fannberg er hér ásamt Zeljko Sankovic

Canon

Mynd: Einkasafn

Fjarðabyggð hefur ráðið Magna Fannberg Magnússon sem þjálfara sinn næstu þrjú árin. Magni mun skrifa undir þriggja ára samning um helgina en hann mun vera óuppsegjanlegur fyrstu tvö árin. Magni hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en hann hefur verið orðaður við nokkur félög.
Magni er 28 ára gamall og hefur að undanförnu verið yfirþjálfari yngri flokka hjá Val en áður var hann aðstoðarþjálfari hjá Grindvíkingum og var þar áður þjálfari hjá HK.

Fótbolti.net sló á þráðinn og tók tal af Magna.

,,Það er rétt að ég sé búinn að samþykkja að taka við Fjarðarbyggð, ég mun skrifa undir þriggja ára samning um helgina eða rétt eftir helgina en ég er mjög ánægður með samninginn," sagði Magni í samtali við Fótbolta.net.

,,Það er búið að vera mikil umfjöllun um mig í fjölmiðlum og töluvert meiri en ég bjóst við en ég ákvað svo að kýla á Fjarðarbyggð eftir að hafa hafnað þremur öðrum félögum." sagði Magni um nýja samninginn en vildi ekkert gefa upp hver hin liðin væru.

Ég ákvað að velja Fjarðabyggð, því mér leist vel á kjarnann og leist mjög vel á aðstæðurnar svo er metnaðurinn mikill og ég er hrifinn af slíkum uppgangi. Þorvaldur er búinn að gera góða hluti með liðið og það er mikil áskorun fyrir mig að taka við liðinu sem hann er búinn að byggja upp og núna er það undir mér komið að reyna koma því á næsta stig en ég er þannig að guði gerður að taka við verðugum áskorun.

Ég verð örugglega töluvert mikið á ferðinni milli Reykjavíkur og Austfjarðanna en það er svona að taka við liði sem er úti á landi þar sem hluti af leikmönnum eru í bænum, ég verð með þá í góðri þjálfun hér í bænum og verð með góðann aðstoðarmann fyrir austan. Ég verð svo duglegur að fara i ferðir Austur yfir veturtímann en fer svo alfarið Austur í apríl/mai. sagði Magni um ferðalögin og hvernig þjálfunin mun fara fram.

Í sambandi við leikmannamálin þá mun ég reyna að styrkja hópinn eitthvað og reyna halda öllum þeim mannskap sem við höfum. Ég vil hins vegar ekki neyða neinn til að vera, ef einhver vill fara þá má hann það og við leysum úr því, ég vil ekki halda leikmönnum sem vilja ekki sýna hjarta og hafa ekki nógu mikinn metnað að spila með liðinu. Menn þurfa að vera klárir að standa bakvið liðið. Ég vil fyrst og fremst hafa metnaðargjarna leikmenn sem eru tilbúnir að vinna með mér og liðinu til að árangur náist sagði Magni Fannberg hæstánægður.
Magni er hann var ráðinn til Vals fyrir síðustu leiktíð.

Magni er hann var ráðinn til Vals fyrir síðustu leiktíð.

Canon

Mynd: Valur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.