Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 19. október 2020 14:47
Elvar Geir Magnússon
Tuchel um Cavani: Hann lifir fyrir það að skora
Edinson Cavani á æfingu í dag.
Edinson Cavani á æfingu í dag.
Mynd: Getty Images
Thomas Tuchel, stjóri Pari St-Germain, segir að Manchester United hafi mikið breyst síðan liðin mættust í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar 2019.

PSG og United eigast við í Meistaradeildinni annað kvöld.

„Það eru nýir leikmenn, fleiri möguleikar, meiri reynsla," segir Þjóðverjinn.

Edinson Cavani gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Manchester United, gegn sínu fyrrum félagi.

„Hann er frábær persónuleiki, mjög kurteis, smá feiminn en hrikalega duglegur. Það er hægt að treysta á hann. Hann lifir fyrir það skora og er ein besta 'nían' í heimsfótboltanum."

Með PSG og Man Utd í riðli eru Istanbul Basaksehir og RB Leipzig.
Athugasemdir
banner
banner
banner