19.12.07 - 22:10
Magnús Már Einarsson
Sao Paulo fær Adriano á láni frá Inter (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilísku meistararnir í Sao Paulo hafa fengið framherjann Adriano á láni frá Inter næstu sex mánuðina eða út júní næstkomandi. Frá þessu greindi Sao Paulo á heimasíðu sinni í kvöld.
Adriano sem er 25 ára gamall hefur átt erfitt uppdráttar hjá Inter undanfarin tvö tímabil og lítið spilað en áður var hann einn af sterkustu framherjum Serie A.
Adriano hefur verið við æfingar í Sao Paulo í mánuð til að komast aftur í form. Nú er síðan ljóst að hann mun vera á láni hjá Sao Paulo á láni en fleiri lið eins og Parma og West Ham höfðu lýst yfir áhuga á að fá hann.
,,Ég er mjög ánægður með þennan samning. Frá fyrsta degi mínum hjá félaginu hafa allir meðhöndlað mig vel," sagði Adriano.
,,Það verður heiður fyrir mig að vinna titla fyrir þetta félag. Ég mun leggja mjög hart að mér við það og komast aftur í brasilíska landsliðið," bætti hann við.

Heimild: Reuters