20.01.06 - 13:57
Hafliði Breiðfjörð
Walcott til Arsenal (Staðfest)

Walcott ásamt Arsene Wenger í dag.

Mynd: Getty Images

Walcott ásamt Arsene Wenger í dag.

Mynd: Getty Images
Hinn 16 ára gamli Theo Walcott skrifaði í dag undir samning við Arsenal en kaupverðið er upphaflega 5 milljónir punda en gæti hækkað upp í allt að 12 milljónir punda. Hann gerir fyrst um sinn unglingasamning við félagið en 16. mars næstkomandi þegar hann verður 17 ára fær hann alvöru atvinnumannasamning.
Hann varð yngsti leikmaður Southampton frá upphafi er hann kom inná sem varamaður í liðinu fyrr á leiktíðinni gegn Wolves, þá 16 ára og 143 daga gamall. Hann getur spilað sem framherji eða framsækinn miðjumaður. Hann lék 13 leiki og skoraði 5 mörk fyrir Southampton á leiktíðinni og vann sér líka sæti í U-17 ára landsliði Englands þar sem hann skoraði fimm mörk í níu leikjum.
,,Theo Walcott er mjög ungur leikmeður en hefur þegar sýnt á frammistöðu sinni með Southampton að hann er hæfileikaríkur leikmaður með mikla möguleika," sagði Arsene Wenger stjóri Arsenal í dag.
,,Mér líkar líka við þá staðreynd að hann er fjölhæfur leikmaður sem er mjög einlægur, sýnir mikla ákveðni til að ná frama og hefur mikinn hraða. Við erum hæstánægðir með að Theo hefur samið við félagið og hann er frábær viðbót við hóp okkar."
Theo Walcott sagði: ,,Ég er svo ánægður með að ganga til liðs við Arsenal, félag sem ég hef dáð svo lengi. Að koma til Arsenal gefur mér tækifæri til að vinna meið heimsklassa leikmönnum á hverjum degi og spila fótbolta á meðal þeirra allra bestu. Þetta er undarlegur dagur, því mér finnst líka mjög erfitt að yfirgefa Southampton."
,,Ég er að fara frá mörgum vinum og frábærum þjálfurum sem hafa verið svo mikilvægir fyrir feril minn til þessa, en ég fer með margar frábærar minningar um félagið. Ég hlakka nú til að hitta nýja liðsfélaga og að leggja mikið að mér sem Arsenal leikmaður."
Walcott hefur ekki spilað í ensku úrvalsdeildinni ennþá en spilaði tvo bikarleiki með unglingaliði Southampton gegn Arsenal á síðustu leiktíðum. Hann var á bekknum aðeins 14 ára gamall þegar liðin mættust í janúar 2004 og skoraði eina markið þegar liðin mættust í Southampton í febrúar á síðustu leiktíð.
Hann gengur strax inn í leikmannahóp Arsenal og mun bera treyjunúmer 32 á leiktíðinni.