Fotbolti.net
20.01.06 - 15:04
Magnús Már Einarsson

Stubbs til Everton (Staðfest)

Stubbs til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Everton hefur óvænt krækt aftur í Alan Stubbs fyrirliða sinn frá Sunderland. Þessi 34 ára gamli leikmaður yfirgaf Everton á leiðinlegan hátt í sumar eftir að hann náði ekki að semja við liðið en nú hefur hann skrifað undir samning út leiktíðina.
Stubb var brjálaður út í samningstilboð Everton í sumar þar sem liðið vildi hafa klásúlu í honum þess efnist að hann félli úr gildi ef krabbamein sem leikmaðurinn var með myndi taka sig upp aftur.

Stubb sem lék á sínum tíma 117 leiki með Everton mun vera í leikmannahópi liðsins gegn Arsenal um helgina en hann sagði: ,,Ég gerði ásakanir sem ég sé eftir vegna misskilnings. Ég samþykki það núna sem félagið sagði á þeim tíma og þeir voru tilbúnir að taka klásúluna burt ef ég hefði farið til sérfræðings og hann gefið mér grænt ljós."

Stubbs sem lék ellefu leiki með Sunderland í vetur vonast einnig til að sanna sig og fá þannig framlengingu á þeim stutta samningi sem hann gerði nú við Everton en hann bætti við: ,,Markmið mitt er auðvelt. Ég vil sanna gildi mitt frá því núna og til enda leiktíðarinnar og vonast til að fá framlengingu á samningnum."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.