20.01.06 - 15:44
Magnús Már Einarsson
Kroldrup til Fiorentina (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Ítalska liðið Fiorentina hefur keypt danska varnarmanninn Per Kroldrup frá Everton. Leikmaðurinn kom til Everton frá Udinese í sumar en hann náði ekki að festa sig í sessi og spiluðu meiðsli þar inn í.
Kroldrup kom reyndar við sögu gegn Millwall í bikarnum á miðvikudaginn en hann stökk síðan á tækifærið þegar það bauðst að fara aftur til Ítalíu og skrifaði undir þriggja ára samning við Fiorentina.
,,Þeger að tækifærið kom þá var bara að taka það. Ég tel að ég hafi ekki fengið tækifæri til að sanna mig (Á Englandi)," sagði Kroldrup við dönsku síðuna Onside.
,,Þeger að tækifærið kom þá var bara að taka það. Ég tel að ég hafi ekki fengið tækifæri til að sanna mig (Á Englandi)," sagði Kroldrup við dönsku síðuna Onside.
