Fotbolti.net
20.01.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Henning Jónasson í KR (Staðfest)

Henning Jónasson í KR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Henning Eyþór Jónasson hefur gengið til liðs við KR en hann hefur æft með liðinu að undanförnu eins og við höfum greint frá. Breiðablik, Fram og HK sýndu honum einnig áhuga auk þess sem að það kom til greina hjá Henning að leika með sínu gamla félagi Selfossi í annarrri deildinni.
Henning sem er 23 ára getur leikið bæði í vinstri bakverði og í fremstu víglínu en hann hefur verið á mála hjá Þrótti undanfarin tvö ár. Samningur hans við Þróttara rann hins vegar út um síðastliðin áramót.

Síðastliðið sumar lék þessi hávaxni leikmaður ekkert með Þrótturum en hann hefur verið í skóla í Greensboro í Bandaríkjunum. Árið áður skoraði hann eitt mark í fimm leikjum í Landsbankadeildinni. Henning var hjá KR áður en að hann fór í Þrótt en hann gekk til liðs við Vesturbæjarliðið árið 2000.

Hann kláraði meðal annars annan flokkinn hjá KR og árið 2003 var hann í láni hjá Aftureldingu og skoraði hann þar fjögur mörk í sextán leikjum í fyrstu deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.