Fotbolti.net
20.01.15 - 13:00
Elvar Geir Magnússon

Francis Coquelin fær nýjan samning hjá Arsenal

Francis Coquelin.

Francis Coquelin.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmiðjumaðurinn Francis Coquelin hefur staðið sig vel síðustu vikur og hefur fengið stærra hlutverk hjá Arsenal. Nú er Frakinn í viðræðum við félagið um nýjan samning.

Coquelin var valinn í úrvalslið vikunnar í enska boltanum en hann hefur gripið tækifærið meðan Mikel Arteta, Jack Wilshere, Mathieu Flamini og Aaron Ramsey hafa verið fjarri góðu gamni vegna meiðsla.
Coquelin er 23 ára og var á lánssamningi hjá Charlton í Championship-deildinni fyrr á tímabilinu en einnig hefur hann leikið fyrir Freiburg og Lorient á lánssamningum.

Coquelin er kominn á undan Mathieu Flamini í forgangsröðinni hjá Arsenal.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.