Fotbolti.net
20.02.06 - 15:03
Magnús Már Einarsson

Björn Bergmann í Grindavík (Staðfest)

Björn Bergmann í Grindavík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hjalti Þór Hreinsson

Sóknarmaðurinn Björn Bergmann Vilhjálmsson úr Víði Garði hefur gengið til liðs við Grindvíkinga og var hann í leikmannahópi liðsins gegn Fjölni í deildabikarnum í gær.
Þessi tvítugi leikmaður hefur verið einn af betri leikmönnum Víðis undanfarin ár en hann lék einnig með Keflavík af hluta til á sínum yngri árum.

Björn skoraði átta mörk í tólf leikjum fyrir Víði í þriðju deildinni síðastliðið sumar og árið 2004 þegar að liðið féll úr annarri deild skoraði hann fimm mörk í fimmtán leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.