20.02.07 - 11:56
Hafliði Breiðfjörð
Cecar Martin til Bolton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bolton hafa gengið frá samningum við spænska varnarmanninn Cesar Martin sem mun leika með liðinu út leiktíðina. Martin sem er 29 ára gamall getur gengið til liðs við félagið strax þar sem samningi hans við spænska félagið Levante var rift í lok síðasta mánaðar. Því er hann samningslaus og getur gengið í raðir félagsins þó félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Martin á að baki yfir 200 leiki í byrjunarliði í spænsku deildinni en hann lék sinn fyrsta leik aðeins 17 ára gamall með Real Oviedo. Hann hefur níu sinnum leikið með spænska landsliðinu, síðast sumarið 2004.
,,Ég er ánægður með að fá Cesar til loka leiktíðarinnar. Um leið og hann varð laus urðum við fljótir til að tryggja okkur þjónustu hans," sagði Sam Allardyce stjóri Bolton á vefsíðu félagsins.
,,Hann þarf að bæta líkamlegt form áður en hann spilar í úrvalsdeildinni. Ég hef fylgst með honum um nokkurn tíma og hann hefur ákveðin lykilatriði sem munu líklega styrkja vörnina okkar um leið og hann kemst í form."
,,Við eigum aðeins þrjá reynda miðverði til skiptanna. Cesar getur haft áhrif í síðustu 11 leikjum tímabilsins."

Heimild: Opinber vefsíða Bolton