Fotbolti.net
20.02.08 - 16:47
Magnús Már Einarsson

Björn Pálsson í Stjörnuna (Staðfest)

Björn Pálsson í Stjörnuna (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Stjarnan hefur fengið varnar og miðjumanninn Björn Pálsson frá Sindra en hann hefur fengið leikheimild með Garðabæjarliðinu og getur leikið með liðinu gegn Fjarðabyggð í Lengjubikarnum um helgina.
Björn, sem er 21 árs gamall, var fyrirliði Sindra í annarri deildinni síðastliðið sumar.

Hann lék alla átján leiki liðsins í annarri deildinni og skoraði í þeim fjögur mörk.

Björn hefur þrátt fyrir ungan aldur verið fastamaður í meistaraflokksliði Sindra frá því árið 2003, að undanskildu árinu 2005 þegar hann lék með öðrum flokki hjá Víkingi Reykajvík.

Hann er fimmti leikmaðurinn sem Stjarnan fær frá því síðastliðið sumar. Markvörðurinn Bjarni Þórður Halldórsson kom frá Fylki í vikunni, varnarmaðurinn Hafsteinn Helgason kom frá Reyni Sandgerði og Ellert Hreinsson og Kári Ársælsson hafa báðir komið frá Breiðablik á láni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.