20.03.08 - 12:21
Magnús Már Einarsson
Jóhann Þórhallsson í Fylki (Staðfest)

Jóhann í baráttu við Guðna Rúnar Helgason. Þeir verða núna liðsfélagar hjá Fylki.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson

Fylkir hefur fengið framherjann Jóhann Þórhallsson frá KR og hefur leikmaðurinn skrifað undir þriggja ára samning við félagið. Þetta staðfesti Leifur Garðarsson þjálfari liðsins í samtali við Fótbolta.net í dag.
Eins og Fótbolti.net greindi frá í fyrrakvöld hafði KR samþykkt tilboð frá Fylki í Jóhann og nú hefur hann náð samningum við Árbæjarliðið.
Jóhann gekk í raðir KR fyrir síðustu leiktíð en náði ekki að sýna sitt rétta andlit eftir að hafa átt frábært tímabil með Grindavík árið áður.
Jóhann skoraði einungis eitt mark í fimmtán leikjum með KR í fyrra eftir að hafa skorað tíu mörk í Landsbankadeildinni með Grindvíkingum 2006.
Áður lék hann með KA í tvö tímabil og þar áður með Þórsurum þar sem hann er uppalinn.
Fylkismenn misstu framherjana Christian Christansen og Albert Brynjar Ingason í haust en fengu þess í stað Allan Dyring. Nú hefur félagið einnig fengið Jóhann en ljóst er að hann styrkir fremstu víglínu liðsins mikið.