20.03.08 - 19:50
Magnús Már Einarsson
Southampton fær Richard Wright á láni (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Southampton hefur fengið markvörðinn Richard Wright á láni frá West Ham í einn mánuð.
Wright hefur mátt þola að vera varaskeifa fyrir Robert Green hjá West Ham á tímabilinu og þessi þrítugi leikmaður hefur einungis leikið þrjá leiki, alla í deildabikarnum.
Southampton hefur átt í markvarðavandræðum því þrír markverðir hjá félaginu hafa meiðst og það á furðulegan hátt.
Kelvin Davies, aðalmarkvörður liðsins, meiddist á fingri eftir að hann flæktist í stuttbuxum hjá öðrum leikmanni.
Bartosz Bialkowski verður ekki meira með á leiktíðinnni eftir að hann fékk þrumuskot í þumalfingurinn þegar samherji hans var að bjarga marki og þá meiddist Michael Poke í upphitun fyrir leik gegn Hull á dögunum.
Þetta þýðir að Wright hoppar beint inn í byrjunarliðið fyrir fallbaráttuslaginn gegn Coventry um helgina en Southampton er í 19.sæti sem stendur, einungis stigi frá fallsæti.

Heimild: BBC