Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gabríel Aron á láni í Hauka (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gabríel Aron Sævarsson hefur verið lánaður til 2. deildar liðs Hauka fyrir komandi tímabil.

Þetta kemur fram í tilkynningu Breiðabliks á samfélagsmiðlum í dag. Gabríel Aron er sóknarmaður sem fæddur er 2006.

Gabríel gekk til liðs við Breiðablik frá Keflavík síðastliðið sumar og var við sama tilefni lánaður til Lengjudeildarliðs ÍR.

Á síðasta tímabili lék Gabríel 19 leiki í Lengjudeildinni og gerði fjögur mörk - öll fyrir Keflavík.

Haukar höfðu fengið Jón Gísla Stefánsson, Pablo Punyed, Ólaf Darra Sgurjónsson, Kára Vilberg Atlason, Jón Arnar Barðdal, Óskar Örn Hauksson, Gunnlaug Fannar Guðmundsson, Einar Karl Ingvarsson, Franz Sigurjónsson og Anton Karl Sindrason fyrr í vetur fyrir átökin í 2. deild.
Athugasemdir
banner