Liam Daði Jeffs sneri aftur til uppeldisfélagsins ÍBV í vetur þegar Þróttur samþykkti kauptilboð Eyjamanna í sóknarmanninn.
Liam kom við sögu í öllum leikjum Þróttar í fyrra og skoraði tíu mörk í Lengjudeildinni.
Hann á eins og fyrr segir rætur að rekja til Vestmannaeyja, faðir hans er Ian Jeffs sem lék um árabil með ÍBV.
Móðir hans er Sigríður Ása Friðriksdóttir sem lék einnig með ÍBV á sínum ferli. Afmælisbarnið sýnir í dag á sér hina hliðina.
Liam kom við sögu í öllum leikjum Þróttar í fyrra og skoraði tíu mörk í Lengjudeildinni.
Hann á eins og fyrr segir rætur að rekja til Vestmannaeyja, faðir hans er Ian Jeffs sem lék um árabil með ÍBV.
Móðir hans er Sigríður Ása Friðriksdóttir sem lék einnig með ÍBV á sínum ferli. Afmælisbarnið sýnir í dag á sér hina hliðina.
Fullt nafn: Liam Daði Jeffs
Gælunafn: Limmi
Aldur: Tvítugur í dag
Hjúskaparstaða: Ég er á föstu
Hvenær lékstu þinn fyrsta leik með meistaraflokki og er eitthvað minnisstætt úr leiknum: Fyrsti mfl leikurinn var gegn Aftureldingu 2021. Þjóðhátíðarleikurinn í covid. Man að það vantaði mjög marga vegna covid og margir skráðir í KFS á þeim tíma. Spilaði held ég 1 mínútu í þeim leik eftir að Seku skoraði mark á 90. mín
Uppáhalds drykkur: Rauður Collab
Uppáhalds matsölustaður: Serrano
Uppáhalds tölvuleikur: Fortnite eða rainbow six siege
Áttu hlutabréf eða rafmynt: nei, á engin hlutabréf eða rafmyntir
Uppáhalds sjónvarpsþáttur: Family Guy
Uppáhalds tónlistarmaður: það er erfitt að velja en myndi segja Stebbi Hilmars
Uppáhalds hlaðvarp: Fm95blö
Uppáhalds samfélagsmiðill: Instagram
Fyrsta síðan sem þú ferð á þegar þú opnar netið: Fótbolti.net
Fyndnasti Íslendingurinn: Sveppi hann tekur það
Hvernig hljómar síðasta sms sem þú fékkst: wok to walk Pöntunin thin er tilbuin. Verdi ther ad godu!
Stadsetning: Smaratorg
Hvaða liði myndir þú aldrei spila með: Aldrei segja aldrei
Besti leikmaður sem þú hefur mætt: Patrick Pedersen
Besti þjálfarinn sem hefur þjálfað þig: Örn Þór Karlsson í 2. flokki hjá Þrótti, alveg geggjaður
Mest óþolandi leikmaður sem þú hefur mætt: Yann Emmanuel Affi í Þór, spilaði á móti honum í Boganum. Hef aldrei hitt mann sem nartar í hæla eins og hann
Hver var fyrirmyndin þín í æsku: Verð að setja Ian David Jeffs þarna
Sætasti sigurinn: Þór á útivelli, klúðraði dauðafæri i fyrri hálfleik og þeir komust snemma yfir í seinni en siðan unnum við sem var mjög mikill léttir
Mestu vonbrigðin: Komast ekki upp í fyrra, það var drullu fúlt
Uppáhalds lið í enska: Manchester United
Ef þú fengir að velja einn leikmann úr öðru íslensku liði í þitt lið: Hlynur Þórhallsson, pjúra gæði
Efnilegasti fótboltamaður/kona landsins: Emil Gautason
Fallegasti fótboltamaðurinn á Íslandi: Benóný Haraldsson
Fallegasta fótboltakonan á Íslandi:.
Besti fótboltamaðurinn frá upphafi: Cristiano Ronaldo
Ein regla í fótbolta sem þú myndir breyta: Það þarf ekki að breyta neinu að mínu mati
Uppáhalds staður á Íslandi: Vestmannaeyjar
Segðu okkur frá skemmtilegu atviki sem gerst hefur í leik:
Þegar við spiluðum á móti Þór 2024 á Akureyri og Kári Kri fer í samstuð við markmanninn. Hann fer ekki vel útúr því, löggan mætir inná völlinn og spyr Kára um kennitöluna í miðjum leik. Fannst það mjög gott móment.
Ertu með einhverja hjátrú tengda fótbolta: Borða alltaf það sama fyrir leik
Fyrir utan fótbolta, fylgist þú með öðrum íþróttum: Handbolta, golfi, pílu
Í hvernig fótboltaskóm spilar þú: nike mercurial
Í hverju varstu/ertu lélegastur í skóla: Íslensku
Vandræðalegasta augnablik: ekkert sem ég man eftir
Hvaða þremur leikmönnum byðir þú í mat og af hverju: Viktor Steinarsson, Kári Kristjánsson og Hlynur Þórhallsson. Smá reunion, það væri hægt að tala endalaust í kringum þetta matarborð
Bestur/best í klefanum og af hverju: Eiður Atli, drullu fyndinn og getur talað endalaust um sína sektabók
Hvern í liðinu þínu myndirðu velja til að taka þátt í sjónvarpsþáttaröð: Ég myndi segja Sesar Örn, hann væri rosalegur í Love island þessi maður er með alvöru leik
Sturluð staðreynd um sjálfan þig: drullu góður í pílu
Hvaða samherji hefur komið þér mest á óvart eftir að þú kynntist honum og af hverju: Róbert Elís kom mér virkilega á óvart, alvöru snillingur eftir að maður fékk að kynnast honum.
Hverju laugstu síðast: hvernig mér gekk í golfi siðast það var smá brekka
Hvað er leiðinlegast að gera á æfingum: sendingaæfingar
Ef þú fengir eina spurningu til að spyrja hvern sem er: Hver yrði spurningin og hvern myndiru spyrja: Myndi spyrja Michael Carrick hvernig hann náði að snúa blaðinu við hjá United
Einhver skilaboð til stuðningsmanna fyrir sumarið: Gaman að vera kominn til Eyja, stuðninsgmenn Eyjamanna eru frábærir og ég hlakka til að sjá sem flesta mæta á völlinn og styðja við ÍBV
Athugasemdir


