Vegna meiðslavandræða er komið heilt ár síðan landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson lék síðast í treyju Íslands. Orri er hinsvegar í hópnum sem er að fara að mæta Kanada og Haíti í vináttulandsleikjum í Kanada.
„Þetta er komið eitt ár. Þetta hefur verið mjög erfiður tími fyrir hann persónulega. Hann er mjög spenntur fyrir því að koma til móts við hópinn. Hann er fyrirliðinn okkar og það er mjög gaman að fá hann aftur," sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari þegar hann opinberaði hópinn.
Orri, sem er 21 árs, hefur skorað fjögur mörk í ellefu leikjum fyrir Real Sociedad í La Liga á tímabilinu. Hann hefur misst af stórum hluta tímabilsins vegna meiðsla í læri en er kominn í gang að nýju
„Það hafa verið smá breytingar síðan hann var síðast með landsliðinu; bæði hvernig við spilum og hvernig dínamíkin er. Hann er búinn að þroskast líka mikið á þessum tíma og hann veit hvað fótboltinn er dýrmætur, og þær mínútur sem hann fær inni á vellinum. Hann er búinn að eignast barn og þroskast mikið sem persóna," segir Arnar.
„Ég tel að við fáum sterkari Orra til baka þó hann hafi ekki spilað eins marga leiki og við hefðum kosið."
Ísland mætir Kanada laugardaginn 28. mars kl. 17:00 að íslenskum tíma og Haítí þriðjudaginn 31. mars kl. 16:30 að íslenskum tíma. Báðir leikirnir fara fram á BMO Field í Toronto.
Athugasemdir

