Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 15:31
Kári Snorrason
Sveinn Margeir orðinn klár - Verður hann lánaður?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Margeir Hauksson á enn eftir að spila leik fyrir Víking en hann samdi við liðið frá KA fyrir rúmu ári síðan.

Fyrir fram var áætlað að hann gæti einungis tekið þátt í hluta síðasta tímabils vegna náms í Bandaríkjunum en erfið hnémeiðsli komu í veg fyrir að hann gæti spilað.

„Sveinn er búinn að vera lengi frá en er kominn aftur út á gras. Við tókum einn innbyrðis leik úti og þar tók hann góðar mínútur,“ sagði Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, í samtali við Fótbolta.net á kynningarfundi Víkings í gær.

Samkeppnin er hörð í liði Víkings og hefur Sveinn verið orðaður við að fara á láni, þar sem KA hefur verið nefnt sem líklegur áfangastaður. Sölvi var spurður hvort að það væri möguleiki að Sveinn færi út á láni.

„Það er ekkert sem ég get tjáð mig um núna. Hann er okkar leikmaður í dag. Sú umræða hefur ekkert komið upp. Við þurfum að meta það með hópinn. Hópurinn er stór og ef allir eru í lagi þá lítur það þannig út að einhverjir þurfa að sitja utan hóps.

Ég biðla til þeirra að vera þolinmóðir því þetta er langt tímabil og við munum þurfa að nýta allan hópinn. Hvort sem menn eru í hópnum í fyrsta leik eða ekki þá þurfa menn að sýna að þeir séu tilbúnir í þetta verkefni með okkur og sýna góða liðsheild. Við þurfum að sjá hvernig þetta þróast.“
Sölvi: Teljum okkur vera með þannig hóp í ár
Athugasemdir
banner
banner