20.04.07 - 14:45
Magnús Már Einarsson
Michael Jackson í Þrótt (Staðfest)

Gunnar Oddsson og Michael David Jackson.

Mynd: trottur.is

Þróttur úr fyrstu deild karla hefur fengið varnarmanninn Michael David Jackson frá The New Saints úr úrvalsdeildinni í Wales og mun hann leika með þeim í sumar.
Finnbogi Hilmarsson, formaður knattspyrnudeildar Þróttar og Gunnar Oddsson þjálfari liðsins fóru til Wales um síðustu helgi og sáu Michael spila á heimavelli liðsins, The Treflan og gengu frá samningum. Michael kemur síðan hingað til lands í byrjun maí.
Jackson sem er 28 ára Englendingur er hávaxinn en á heimasíðu þróttar segir: ,,hann er mjög sterkur leikmaður sem mun klárlega styrkja lið Þróttar verulega í baráttunni um sæti í efstu deild í sumar."
Michael á að baki um 140 leiki í Welsku úrvalsdeildinni. Síðastliðin tvö tímabil hefur hann leikið með The New Saints FC og orðið bæði Welskur meistari og bikarmeistari með liðinu og þá er liðið nánast búið að tryggja sér titilinn í ár.
Áður hefur Michael einnig orðið Welskur meistari með Rhyl FC. Michael hefur einnig spilað þó nokkra leiki í evrópukeppninni og forkeppni meistaradeildarinnar, þar á meðal gegn Liverpool.

Heimild: Heimasíða Þróttar