Fotbolti.net
20.04.07 - 15:06
Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði fær þrjá Bandaríkjamenn (Staðfest)

Reynir Sandgerði fær þrjá Bandaríkjamenn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Reynir Sandgerði úr fyrstu deild hefur fengið þrjá Bandaríkjamenn sem munu leika með liðinu í sumar en þetta staðfesti Jakob Már Jónharðsson þjálfari liðsins við Fótbolti.net í dag.
Leikmennirnir sem um ræðir eru vinstri kantmaðurinn Salvador Benitez, miðjumaðurinn Michael Brown og sóknarmaðurinn Shawn Dixon.

Allir þessir leikmenn koma frá Wesleyan-háskolanum í Norður-Karolínu en þeir voru til reynslu hjá Reyni í síðasta mánuði líkt og tveir aðrir leikmenn úr skólanum. Þeir spiluðu þá meðal annars æfingaleik með Reynismönnum gegn Val.

Að sögn Jakobs má búast við að leikmennirnir þrír komi til Reynis fimmta eða sjötta maí en þeir munu ekki þurfa að fara aftur í skólann um haustið og geta þeir því klárað tímabilið með Sandgerðingum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.