Aftur missir ÍBV af liðsstyrk vegna meiðsla

Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kristján Guðmundsson þjálfari ÍBV.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
ÍBV hefur hætt við að fá varnarmanninn Gilson Correia í sínar raðir. GIlson spilaði með ÍBV í æfingaleik gegn Haukum á dögunum og hafði náð samningum við félagið.
Í læknisskoðun komu í ljós meiðsli og því er Gilson farinn aftur til Sertanense í C-deildinni í Portúgal.

„Hann er meiddur og fór heim í dag í skoðun hjá sínu liði. Það er mjög ólíklegt að við semjum við hann,\" sagði Krisján Guðmundsson þjálfari ÍBV eftir 2-1 tapið gegn Val í Meistarakeppni KSÍ í gær.
Gilson er frá Gíneu-Bissau en hann er uppalinn hjá Belenenes í Portúgal.
Þetta er í annað sinn í vetur sem ÍBV missir af liðsstyrk vegna meiðsla. Í janúar samdi félagið við argentínska varnarmanninn Ignacio Fideleff, fyrrum leikmann Napoli, en samningnum var rift vegna meiðsla hans.
Henry Rollinson og Yvan Erichot voru ekki með ÍBV í gær en Kristján reiknar með að þeir komi við sögu í æfingaleik gegn FH á Hásteinsvelli á sunnudaginn.
„Yvan er byrjaður að æfa og hann spilar eitthvað í æfingaleiknum um helgina. Henry líka,\" sagði Kristján.
ÍBV mætir Breiðabliki í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar um aðra helgi.