Fotbolti.net
19.11.26 - 21:30
Ívan Guðjón Baldursson

Rüdiger: Ætti ég að biðja Mbappé um að sinna mínu starfi?

Rüdiger: Ætti ég að biðja Mbappé um að sinna mínu starfi?
Canon

Mynd: EPA

Meistaradeild
Þýski varnarjaxlinn Antonio Rüdiger gaf kost á sér í viðtal við The Athletic og ræddi meðal annars um Xabi Alonso, þjálfara Chelsea sem stýrði Real Madrid á fyrri hluta síðustu leiktíðar.
Rüdiger er 33 ára gamall og hefur verið að spila annan hvern leik undir stjórn José Mourinho, en er aðeins með hálft ár eftir af samningi við Real Madrid.

Hann hefur spilað 189 leiki á rúmum fjórum árum í Madríd og er aðeins fjórtán keppnisleikjum frá því að vera búinn að spila fleiri leiki fyrir félagið heldur en hann gerði á dvöl sinni hjá Chelsea.

„Ef ég spila flesta leiki hér á félagsliðaferlinum þá get ég líklega sagt að Real Madrid sé mikilvægasta félagsliðið í mínu lífi. Mér líður vel og ég er að fá spiltíma, ég er mjög ánægður," sagði Rüdiger áður en hann rifjaði upp stutta dvöl Xabi Alonso í Madríd.

„Xabi er með mjög skýra hugmynd af því hvernig hann vill spila fótbolta og er mjög kröfuharður þjálfari, sem mér þykir jákvætt. Við vorum á svaka flugi undir hans stjórn í fyrra þar til í nóvember. Því miður þá náðum við ekki úrslitunum sem við vildum í stóru leikjunum.

„Hann er núna kominn til Chelsea sem er mjög stórt félag með frábært verkefni í gangi. Ég hef ekki talað við hann síðan ég óskaði honum alls hins besta daginn sem hann var rekinn."


Real Madrid hefur mistekist að vinna stóran titil síðustu tvö ár í röð og hefur Kylian Mbappé, skærasta stjarna liðsins, verið gagnrýndur fyrir að sinna ekki varnarskyldum. Talið er að nokkrar af helstu stjörnum liðsins hafi rifist við Alonso þegar hann krafðist meiri varnarvinnu í leikjum og vildi sjá meiri metnað á æfingum.

„Það er hræðilegt fyrir félag eins og Real Madrid að vinna ekki stóran titil í tvö ár. En ætti ég að segja við mann (Mbappé) sem er búinn að skora 100 mörk á tveimur árum að sinna vinnunni minni? Það er gjörsamlega fráleit hugmynd.

„Ef við förum aftur í söguna, hvernig var þetta þegar Bale, Benzema og Cristiano voru hérna? Félagið náði ótrúlegum árangri með þá innanborðs, það er óþarfi að tala alltaf um varnarframlagið þeirra."


Rudiger ræddi að lokum Mourinho, núverandi þjálfara Real Madrid.

„Mourinho er mikill grínisti í klefanum. Hann er alltaf með nýja sögu til að segja þegar hann mætir á morgnana, en þegar við mætum á völlinn hættir hann að grínast og krefst fullrar einbeitingar."
Rüdiger: Ætti ég að biðja Mbappé um að sinna mínu starfi?
Canon

Mynd: EPA

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona12+3533
2Real Madrid12+2130
3Atletico Madrid12+1328
4Betis12+526
5Real Sociedad12+122
6Sevilla12-218
7Athletic11+416
8Villarreal12+215
9Deportivo12+115
10Racing Santander12-1314
11Celta12013
12Alaves12-213
13Espanyol12-112
14Vallecano11-612
15Getafe12-1012
16Osasuna12-1112
17Levante12-511
18Elche12-610
19Valencia12-129
20Malaga12-145
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.