Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 20. apríl 2021 20:28
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Woodward stígur frá borði undir lok árs (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Manchester United hefur tilkynnt að Ed Woodward muni klára árið hjá félaginu og svo stíga frá borði.

Fyrr í kvöld bárust fréttir þess efnis að Woodward hefði sagt af sér en óljóst var hvað það í raun þýddi.

Wodward er titlaður sem einhvers konar varaformaður félagsins.

„Ég er mjög stoltur að hafa þjónað United og þetta hefur verið heiður að starfa fyrir stærsta félags heims í sextán ár. Félagið er vel staðsett upp á framtíðina og það verður erfitt að ganga í burtu í lok árs," segir Woodward.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner