20.06.07 - 12:31
Hafliði Breiðfjörð
Kolbeinn Sigþórsson til AZ Alkmaar (Staðfest)

Kolbeinn Sigþórsson er komin til AZ Alkmaar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kolbeinn Sigþórsson skrifaði í morgun undir þriggja ára samning við hollenska félagið AZ Alkmaar. Kolbeinn sem lék með HK í 1. deildinni á síðustu leiktíð var samningslaus og eftir frábæra frammistöðu með U17 ára landsliði Íslands voru mörg stórlið í Evrópu á höttunum eftir honum.
Andri Sigþórsson bróðir Kolbeins sem hefur hjálpað honum í samningamálum staðfesti í morgun í samtali við Fótbolta.net að Kolbeinn hafi farið í læknisskoðun hjá Alkmaar í gær og skrifað svo undir samninginn í morgun.
Andri sagði að mörg lið hafi verið á eftir Kolbeini og um 10 skrifleg tilboð hafi borist í Kolbein. Hann sagði að valið hafi verið erfitt en að lokum hafi þeim litist best á AZ Alkmaar þar sem Louis Van Gaal er þjálfari og öll aðstaða er frábær og vel staðið að öllum málum.
Hann sagði að Kolbeinn hafi rætt við Van Gaal og fundið fyrir því að þeir hafi báðir það sama markmið að Kolbeinn geti byrjað að spila með aðalliði AZ Alkmaar eins fljótt og hægt er þó hann þurfi sinn tíma til að aðlagast og koma sér fyrir í Hollandi.
Kolbeinn mun hefja æfingar með AZ Alkmaar 5. júlí næstkomandi þegar undirbúningstímabilið hefst hjá félaginu. Hjá AZ Alkmaar mun hann hitta fyrir Grétar Rafn Steinsson landsliðsmann Íslands og Aron Einar Gunnarsson unglingalandslðsmann. Andri sagði að það hafi skipt miklu í vali Kolbeins að Grétar og Aron Einar væru þar fyrir en hann ræddi við Grétar áður en hann tók ákvörðun um að fara til AZ Alkmaar.