Fotbolti.net
20.06.07 - 14:57
Arnar Geir Halldórsson

Andreas Granqvist til Wigan (Staðfest)

Andreas Granqvist til Wigan (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hafa gengið frá kaupum á sænska varnarmanninum Andreas Granqvist frá Helsingborg en kappinn hefur verið á láni hjá Wigan síðan í janúar.
Chris Hutchings stjóri Wigan var ánægður að hafa gengið frá kaupunum. ,,Það voru margir áhugasamir um Andreas og þess vegna vildi ég ganga frá þessu sem fyrst."

,,Hann hefur mikla hæfileika og hefur allt til þess að ná langt. Hann er teknískur, sterkur og kraftmikill og hefur mikinn hraða. Nú er það undir okkur komið að hann fóti sig í enska boltanum," sagði Hutchings.

Granqvist spilaði einungis einn leik á lánstíma sínum með Wigan. ,,Að spila á Englandi hefur alltaf verið draumur fyrir mig og ég get ekki beðið eftir að hefja leik þar."

,,Mér líkar allt við klúbbinn og finnst ég hafa lært mikið á dvöl minni þar í vetur. Mér finnst ég vera tilbúinn til að berjast um byrjunarliðssæti næsta vetur. Mér líkar vel við stjórann og er spenntur fyrir framtíðinni." sagði þessi 22 ára Svíi að lokum.

Granqvist er fjórðu kaup Wigan í sumar en áður hafa þeir gengið frá kaupum á Titus Bramble, Mario Melchiot og Antoine Sibierski.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.