Fotbolti.net
20.06.08 - 10:20
Hörður Snævar Jónsson

Steve McClaren tekur við Twente (Staðfest)

Steve McClaren tekur við Twente (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Fyrrum þjálfari enska landsliðins, Steve McClaren hefur verið ráðinn stjóri hjá hollenska liðinu Twente en með liðinu leikur Bjarni Þór Viðarsson.
McClaren hefur verið án starfs síðan hann var rekinn frá enska landsliðinu en hann náði ekki að koma liðinu inn á EM sem nú er í gangi.

,,Í morgun tók ég tilboði frá Twente í Hollandi um tveggja ára samning,\" sagði McClaren.

,,Þetta er spennandi verkefni á mínum ferli og ég get ekki beðið eftir því að takast á við þetta verkefni.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.