Fotbolti.net
20.06.08 - 14:14
Magnús Már Einarsson

Glen Little til Portsmouth (Staðfest)

Glen Little til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur fengið kantmanninn Glen Little frá Reading en hann hefur gert eins árs samning við félagið.
Little lék einungis tvo leiki á síðustu leiktíð þar sem hann átti við þrálát meiðsli að stríða.

Steve Coppell stjóri Reading vildi halda honum hjá félaginu en Little ákvað að hafna nýju samningstilboði.

,,Við buðum Glen nýjan samning en svo virðist vera sem úrvalsdeildin og Evrópukeppni hafi heilla of mikið,\" sagði Nick Hammond yfirmaður fótboltamála hjá Reading.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.