Fotbolti.net
20.06.18 - 22:16
Egill Sigfússon

Einar Karl: Vissi að hann væri alltaf að fara í markið!

Auglýsing
Einar skoraði stórbrotið mark í kvöld

Einar skoraði stórbrotið mark í kvöld

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

Valur hafði betur í toppslag við FH í Pepsí-deild karla í kvöld þar sem þeir unnu 2-1 sigur á Hlíðarenda. Einar Karl Ingvarsson skoraði sigurmarkið og var að vonum sáttur með að vinna sterkt FH-lið.
„Þetta var skemmtilegur leikur og bara gott að vinna 2-1 sigur á FH sem er mjög sterkt lið.

Einar skoraði stórbrotið sigurmark í leiknum, tók boltann á lofti í vinkilinn og sagðist allan tímann vita að boltinn færi inn en þorði ekki að fullyrða hvort um væri að ræða mark tímabilsins.

„Ég vil ekki alveg facta það en þetta var mjög gott mark, um leið og ég hitti boltann var enginn spurning um að hann væri að fara inn.\"

Valur hafa verið á skriði undanfarið og unnið fimm deildarleiki í röð og Einar segir að nú er bara að byggja ofan á það í næsta leik.

„Við spiluðum vel sem heild og það er það sem vann leikinn, það er fínt að vera vinna og nú hugsum við bara um næsta leik og förum á fullu í hann.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.