Waldschmidt með þrennu
Tveir leikir fóru fram í EM U21 á Ítalíu í dag. Í dag var leikið í B-riðli og var þetta 2. umferð riðilsins.
Danmörk vann 3-1 sigur á Austurríki og kom sér þar með á blað í riðlinum. Joakim Maehle skoraði tvívegis fyrir Danina og Andreas Skov Olsen tryggði sigurinn með marki í uppbótartíma.
Danmörk vann 3-1 sigur á Austurríki og kom sér þar með á blað í riðlinum. Joakim Maehle skoraði tvívegis fyrir Danina og Andreas Skov Olsen tryggði sigurinn með marki í uppbótartíma.
Þýskaland slátraði Serbíu í seinni leiknum í dag. Gian-Luca Waldschmidt gerði þrennu fyrir Þjóðverja og þeir Mahmoud Dahoud, Arne Maier og Marco Richter skoruðu sitt markið hvort.
Adrija Zivkovic, leikmaður Benfica, skoraði eina mark Serba úr vítaspyrnu.
Þýskaland 6-1 Serbía
1-0 Marco Richter ('16)
2-0 Gian-Luca Waldschmidt ('30)
3-0 Gian-Luca Waldschmidt ('37)
4-0 Mahmoud Dahoud ('69)
5-0 Gian-Luca Waldschmidt ('80)
5-1 Adrija Zivkovic ('85, víti)
6-1 Arne Maier ('90+2)
Danmörk 3-1 Austurríki
1-0 Joakim Maehle ('33)
1-1 Philipp Lienhart ('47)
1-1 Christoph Baumgartner ('73, klúðrað víti)
2-1 Joakim Maehle ('77)
3-1 Andreas Skov Olsen ('90+3)
Athugasemdir