Tyson Fury, heimsmeistari í hnefaleikum, er einn harðasti stuðningsmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United og hefur aldrei farið leynt með það en hann ræddi við Mirror um stöðuna á liðinu.
Fury lagði hanskana á hilluna eftir síðasta bardaga sinn við Dillian Whyte í apríl en hann fór í gegnum 33 bardaga á ferlinum án þess að tapa.
Nú þegar hann hefur meiri frítíma eftir farsælan feril ætlar hann sér að mæta á fleiri leiki hjá United, en segist samt ekkert gríðarlega spenntur svona miðað við frammistöðu liðsins síðustu ár.
„Ég mun heimsækja Old Trafford aðeins meira þar sem ég hef lagt hanskana á hilluna, en alltaf þegar ég fer og horfi á liðið, þá tapar það. Ég sætti mig ekki við neitt annað en það besta og ég tapa ekki. Ég tek ekki þátt í svoleiðis kjaftæði. Það er sigur eða ekkert, þannig að fylgjast með United í augnablikinu er bilun því ég skil ekki hvers vegna þessir leikmenn eru ekki hlaupandi á eftir boltanum í níutíu mínútur."
„Það eru margir sem kenna stjórunum og þjálfaraliðinu um, en þegar allt kemur til alls þá er bara of mikið af prímadonnum í Manchester United. Það besta sem gat gerst er að hreinsa út úr félaginu. Það þurfti bera að berja í borðið og þessi hreinsun er loksins að eiga sér stað núna."
„Þeir þurfa einhvern strangan eins og Sir Alex Ferguson, sem segir þeim hvað þeir eiga að gera og ef þeir gera það ekki þá fara þeir beint á bekkinn. Mér er skítsama hversu góður eða frægur þú ert, þú spilar ekki fyrr en þú ákveður að leggja þig fram. Þegar þú ert í liði þýðir það að allir leggja sitt af mörkum og treysta ekki á einhvern einn til að skora mörkin eða hlaupa fyrir þá," sagði Fury.
Allir eiga að róa í sömu átt
Fury hefur alltaf verið með fjölmennt teymi þegar hann er að undirbúa sig fyrir bardaga og án þeirra hefði hann aldrei geta unnið bardaga sína. Liðsheildin er jú það sem skiptir mestu máli.
„Það eru allir að vinna að sama markmiði og það er að vinna. Ég veit ekkert um það hvernig á að stýra liði í fótbolta en ég veit allt um það hvernig á að vinna og það þurfa allir taka þátt í því til að ná í úrslit. Ef ég fer einn í ræktina til að æfa fyrir titilbardaga þá mun ég ekki ná sama árangri."
„Þess vegna er ég alltaf með lið í kringum mig. Ég er með nuddara, styrktarþjálfara, æfingafélaga, þjálfara og svoleiðis og við erum öll að róa í sömu átt og ætlum að ná í úrslit því það er aðalmarkmiðið í þessu. Ef sum þeirra væru að fara í sitt hvora áttina og væru eiginhagsmunaseggir þá værum við ekki að ná í þessi úrslit á hverju ári."
Ekki viss með Ronaldo
Cristiano Ronaldo kom til United frá Juventus fyrir síðasta tímabil og skoraði 18 mörk í ensku úrvalsdeildinni en liðið hafnaði samt sem áður í 6. sæti deildarinnar og mun spila í Evrópudeildinni á næstu leiktíð. Fury segir það frábært að hafa mann eins og Ronaldo hjá félaginu en er samt sem áður á báðum áttum með áhrif hans.
„Það eru góðar fréttir að Ronaldo ætli að vera áfram en það er ákveðin kenning í gangi. Þegar við vorum án hans á leiktíðinni á undan þá endaði United í öðru sæti en þegar liðið var með Ronaldo þá endaði það í sjötta sæti. Fólk mun segja að ef við hefðum ekki verið með þessi 20 mörk frá honum þá hefðum við endað neðar en á síðasta tímabili, en það gerðist ekki árið á undan og við enduðum mun ofar á töflunni."
„Þegar þú ert með ofurstjörnu eins og Ronaldo þá treysta allir á að hann skori mörk og ef hann væri ekki þarna þá væru það þeir sem væru að skora mörkin, alveg eins og þeir gerðu á tímabilinu á undan. Ég er ekki að segja að það sé slæmt að hafa hann þarna, því hann er frábær, en það er stundum þannig með stjörnuleikmenn að þeir eru með liðið á herðum sér og ungu leikmennirnir falla í skuggann. Þeir fá ekki tíma til að skína því 'hinn mikli' Ronaldo er á vellinum," sagði hann í lokin,
Athugasemdir