Fotbolti.net
20.06.26 - 18:10
Brynjar Ingi Erluson

Arnar bendir á veikleika Hollendinga - „Vona að þeir læri þá lexíu“

Arnar bendir á veikleika Hollendinga - „Vona að þeir læri þá lexíu“
Canon

Mynd: EPA

Arnar Gunnlaugsson fór yfir fyrri hálfleikinn hjá Hollandi og Svíþjóð í HM-stofunni á RÚV, en þar benti hann á veikleika í hollenska liðinu.
Hollenska liðið var með mikla yfirburði í upphafi leiks og komst yfir með tveimur mörkum frá Brian Brobbey.

Eftir vatnspásuna breytti Graham Potter, þjálfari sænska liðsins, leikstílnum og gekk það upp. Þeir fóru að tengja saman sendingar og skapa sér mikla hættu, en Arnar segir að Hollendingar megi ekki fara að bakka því þá lenda þeir í miklum vandræðum.

„Hollendingar geggjaðir fyrstu tuttugu þangað til vatnspásan kom þá náði Potter að 'tweak-a' aðeins og bjarga því sem bjargað varð og Svíarnir urðu sterkari fyrir vikið.“

„Þetta er enn leikur og Hollendingar eru værukærir í varnarleiknum og sérstaklega í lágvörninni. Þeir þurfa að halda áfram að hafa trú á því sem þeir eru að gera og ná einu marki til þess að gera Hollendinga skelkaða.“

„Galinn varnarleikur hjá Svíum og tók þá 23 mínútur að fatta að De Jong væri að spila þessa leikstöðu og kerfið Svía bauð ekki upp á þetta en svo breyttu þeir í fimm manna miðju og Isak fór að vera vinstri kantur, eða í vinstra hálf-svæði og þá fengu þeir miklu fleiri möguleika og varnarleikurinn varð sterkari fyrir vikið.“

„Ég ætla að vona að þeir læri lexíu af Japansleiknum og fari ekki að bakka, bakka og bakka því Holland er alls ekki gott lágvarnarlið og hljóta að vita eftir Japansleikinn og þessa hættu sem Svíarnir voru að mynda hvað eftir annað eftir vatnspásuna. Svíarnir þurfa á meðan að halda orkustiginu gangandi. Þeir þurfa að trúa, trúa og trúa,“
sagði Arnar í HM-stofunni.

Hollendingar hlustuðu á Arnar því þeir voru að bæta við þriðja markinu er Cody Gakpo stýrði boltanum í netið af hálfum metra eftir laglega sendingu Denzel Dumfries.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.

Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.

Kvöldin verða geggjuð í sumar!
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.