Fotbolti.net
10.07.26 - 21:49
Magnús Atlason

Jóhann Birnir sáttur - „Ekkert eðlilega ánægður með karakterinn í liðinu“

Auglýsing
Jóhann Birnir sáttur - „Ekkert eðlilega ánægður með karakterinn í liðinu“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
ÍR og Þróttur skildu jöfn 1-1 eftir hörkuleik í 13. umferð Lengjudeildarinnar. Alls fóru 10 gul spjöld á loft og 2 rauð, þar á meðal á Jóhann Birni Guðmundsson þjálfara ÍR. Fótbolti.net náði tali af honum.
"Það eru blendnar tilfinningar hjá mér persónulega en ég er hrikalega ánægður með spilamennskuna okkar við mjög erfiðar aðstæður og mótlæti nánast allan leikinn og náttúrulega ánægður með stigið."

ÍR urðu manni færri eftir um 20 mínútna leik en komu til baka þrátt fyrir það.

"Þetta var jafn leikur allan tímann, það var ekki eins og við vorum einum færri og mér leið aldrei illa í leiknum, mér fannst þeir aldrei setja einhverja pressu á okkur og við ef eitthvað hættulegri og líklegri til þess að vinna leikinn frekar en þeir."

ÍR-ingar kölluðu eftir víti í lok leiks þegar Hákon Dagur Matthíasson var sloppinn einn í gegn, hvað fannst Jóa um atvikið?

"Þetta var 100% víti, Hákon er bara komin framfyrir hann og hann (Eiríkur Þorsteinsson Blöndal) fer aftan í hann og hann (dómarinn) var nýbúinn að gefa okkur víti og þetta var týpískt móment þar sem hann þorir ekki að gefa annað víti."

ÍR hefur enn ekki tekist að halda hreinu í deildinni í ár og er eina liðið sem á eftir að gera það.

"Það er ekki gott, það er eitthvað sem við erum meðvitaðir um og erum að vinna í og höfum verið að laga þó að við höfum ekki náð að halda hreinu, við höfum fengið færri mörk á okkur í síðustu leikjum en núna erum við þá að skora minna."

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.