Lengjudeildin: Nítján mörk í fjórum leikjum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Ægir

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það var gríðarlegt fjör í Lengjudeildinni í kvöld þar sem nítján mörk voru skoruð í fjórum leikjum.
Flest mörk litu dagsins ljós á Njarðvíkurvelli, þar sem heimamenn fóru með sigur af hólmi í nágrannaslag gegn Grindvíkingum.
Liðin skiptust á að skora í skemmtilegum fyrri hálfleik og var staðan 3-3 í leikhlé. Í síðari hálfleik hélt fjörið áfram og skoraði fyrirliðinn Eiður Aron Sigurbjörnsson sigurmark heimamanna á 76. mínútu.
Lokatölur urðu 5-4 þar sem Leandro Fernandes setti tvennu í sigurliði Njarðvíkur á meðan tvennan frá Gunnleifi Orra Gunnleifssyni dugði ekki til að bjarga stigi fyrir Grindavík.
Njarðvík er með 20 stig eftir 13 umferðir, tíu stigum fyrir ofan Grindavík sem er í fallbaráttu en með leik til góða.
Þá voru sjö mörk skoruð í Þorlákshöfn þegar botnlið Ægis tapaði fyrir HK. Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og voru það heimamenn sem náðu forystunni en Dominik Radic leiddi endurkomu HK-inga með tvennu.
Jordan Adeyemo setti tvennu fyrir Ægi en hún dugði ekki til gegn sterkum andstæðingum, lokatölur 3-4 fyrir HK sem er með 22 stig eftir 13 umferðir. Ægir situr eftir með 8 stig eftir 14 leiki.
Mattías Kjeld gerði eina mark leiksins er Grótta lagði Leikni R. að velli í jöfnum leik með umdeildum dómaraákvörðunum. Mattías skoraði sigurmarkið úr vítaspyrnu og fékk Eiríkur Örn Beck að líta rauða spjaldið í liði heimamanna undir lokin.
Bæði lið eiga 19 stig en Grótta er með leik til góða á Breiðhyltinga.
Að lokum skildu ÍR og Þróttur R. jöfn í Breiðholti þar sem heimamenn misstu Jón Arnar Sigurðsson af velli á 21. mínútu með tvö gul spjöld sem hann fékk með stuttu millibili.
Staðan var markalaus í leikhlé en gestirnir úr Laugardalnum náðu forystunni í upphafi síðari hálfleiks þegar Eiríkur Þorsteinsson Blöndal kláraði með marki eftir fyrirgjöf.
Jóhann Birnir Guðmundsson þjálfari ÍR var ósáttur með dómgæsluna í fyrri hálfleik og hélt áfram að láta heyra í sér eftir leikhlé. Það leiddi til rauðs spjalds svo hann þurfti að klára að horfa á leikinn úr stúkunni.
Tíu leikmenn í liði heimamanna héldu þó áfram að berjast og misstu aldrei trúna. Þeir nældu sér í vítaspyrnu á lokakaflanum og skoraði Emil Nói Sigurhjartarson af punktinum.
ÍR-ingar kölluðu eftir annarri vítaspyrnu á lokamínútunum en fengu ekki og sköpuðu bitlausir Þróttarar ekki mikla hættu, svo lokatölur urðu 1-1.
Þróttur missteig sig í toppbaráttunni með þessu jafntefli og er með 24 stig eftir 13 umferðir, 12 stigum fyrir ofan ÍR.
Njarðvík 5 - 4 Grindavík
0-1 Stefán Jón Friðriksson ('6 )
1-1 Aron Einarsson ('12 )
1-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('17 )
2-2 Leandro Fernandes ('26 )
3-2 Leandro Fernandes ('38 )
3-3 Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('42 )
4-3 Arnleifur Hjörleifsson ('50 )
4-4 Gunnleifur Orri Gunnleifsson ('63 )
5-4 Eiður Aron Sigurbjörnsson ('76 )
Lestu um leikinn
Ægir 3 - 4 HK
1-0 Baptiste Gateau ('13 )
1-1 Karl Ágúst Karlsson ('14 )
1-2 Dominik Radic ('21 )
1-3 Dominik Radic ('26 )
2-3 Jordan Adeyemo ('33 )
2-4 Tumi Þorvarsson ('34 )
3-4 Jordan Adeyemo ('36 )
3-4 Jóhann Þór Arnarsson ('81 , misnotað víti)
Lestu um leikinn
Leiknir R. 0 - 1 Grótta
0-1 Mattías Kjeld ('74 , víti)
Rautt spjald: Eiríkur Örn Beck, Leiknir R. ('89)
Lestu um leikinn
ÍR 1 - 1 Þróttur R.
0-1 Eiríkur Þorsteinsson Blöndal ('49 )
1-1 Emil Nói Sigurhjartarson ('78, víti )
Rautt spjald: Jón Arnar Sigurðsson, ÍR ('21)
Rautt spjald: Jóhann Birnir Guðmundsson, ÍR ('50)