Besta deild kvenna: Jafnt eftir fjörugan leik á Hlíðarenda

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur 1 - 1 Stjarnan
0-1 Þóra María Hjaltadóttir ('3)
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('67)
0-1 Þóra María Hjaltadóttir ('3)
1-1 Margrét Brynja Kristinsdóttir ('67)
Lestu um leikinn: Valur 1 - 1 Stjarnan
Valur og Stjarnan áttust við í eina leik kvöldsins í Bestu deild kvenna og náðu gestirnir úr Garðabænum forystunni snemma leiks, þegar Þóra María Hjaltadóttir skoraði eftir hornspyrnu.
Bæði lið fengu færi til að bæta marki við leikinn og komst Stjarnan næst því þegar Birna Jóhannsdóttir setti boltann í slána í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Staðan var því 0-1 í leikhlé.
Stjarnan komst nálægt því að tvöfalda forystuna í upphafi síðari hálfleiks og setti boltann aftur í slána, en heimakonur svöruðu með jöfnunarmarki.
Margrét Brynja Kristinsdóttir jafnaði eftir atgang í vítateig Stjörnunnar á 67. mínútu og vöknuðu Valskonur til lífsins við jöfnunarmarkið. Nadía Atladóttir klúðraði tveimur dauðafærum með stuttu millibili og átti Ísabella Sara Tryggvadóttir hættulega marktilraun en ekki tókst þeim að ná forystunni.
Bæði lið fengu hálffæri til að pota inn sigurmarki á lokakaflanum en tókst ekki, svo niðurstaðan er 1-1 jafntefli.
Stjarnan er áfram í þriðja sæti Bestu deildarinnar, með 18 stig eftir 10 umferðir. Valur er óvænt í fallbaráttu með 10 stig.