Fotbolti.net
10.07.26 - 18:11
Ívan Guðjón Baldursson

Byrjunarlið Spánar og Belgíu: Doku og De Bruyne byrja

Byrjunarlið Spánar og Belgíu: Doku og De Bruyne byrja
Canon

Mynd: EPA

Spánn og Belgía eigast við í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins og hafa byrjunarliðin verið staðfest.
Evrópumeistararnir frá Spáni gera eina breytingu frá sigrinum gegn Portúgal, þar sem Fabián Ruiz tekur sæti Pedri á miðjunni.

Belgar rúlluðu yfir heimamenn í liði Bandaríkjanna og gera tvær breytingar á byrjunarliðinu. Jérémy Doku og Kevin De Bruyne, núverandi og fyrrverandi leikmenn Manchester City, koma inn í byrjunarliðið fyrir Amadou Onana sem meiddist illa og Dodi Lukebakio.

Búast má við gríðarlega spennandi slag þar sem tvær öflugar fótboltaþjóðir mætast. Byrjunarliðin eru ógnarsterk og það eru varamannabekkirnir einnig.

Spánn: Simon, Porro, Cubarsi, Laporte, Cucurella, Rodri, Ruiz, Olmo, Yamal, Baena, Oyarzabal
Varamenn: Torres, Williams, Zubimendi, Pedro, Pino, Munoz, Pubill, Merino, Llorente, Iglesias, Grimaldo, Gavi, E. Garcia, J. Garcia, Raya

Belgía: Courtois, Castagne, Ngoy, Mechele, De Cuyper, Raskin, Tielemans, De Bruyne, Trossard, Doku, De Ketelaere
Varamenn: Lukebakio, Lukaku, De Winter, Meunier, Saelemaekers, Witsel, Vanaken, Theate, Seys, Moreira, Fernandez-Pardo, Lammens, Penders
Byrjunarlið Spánar og Belgíu: Doku og De Bruyne byrja
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.